12. apríl
Fréttir af aðalfundi og fyrsta ársfjórðungi
Aðalfundur DMM Lausna ehf. var haldinn í síðasta mánuði. Á fundinum var kosin ný stjórn, en hana skipa:
- Júlíus J. Jónsson, HS Veitum, stjórnarformaður
- Einar Mathiesen, Landsvirkjun, varaformaður
- Inga Dóra Hrólfsdóttir, OR
- Albert Albertsson, HS Orku
- Helgi Óskar Óskarsson, RARIK
Þau Júlíus, Inga Dóra og Einar voru áður í stjórn, en Helgi og Albert eru nýir í stjórn.
DMM Lausnir skiluðu hagnaði árið 2014, líkt og mörg undanfarin ár enda hefur reksturinn verið traustur í langan tíma og stöðug síþróun í gangi. Fyrsta ársfjórðungsuppgjör ársins 2015 liggur nú einnig fyrir með ágætum hagnaði.
Vinna er hafin við næstu útgáfu DMM, DMM 3.5, verkefnastaðan er góð og við sjáum fram á áframhaldandi gott ár 2015.