DMM Lausnir logo

Um fyrirtækið


 

 

DMM Lausnir ehf. er hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu upplýsingakerfisins DMM og ráðgjöf í tengslum við notkun kerfisins hjá viðskiptavinum. DMM er hugbúnaðarkerfi fyrir eigna- og viðhaldsstjórnun.

 

Hlutverk fyrirtækisins er að þróa og bjóða hugbúnað á sviði viðhaldsstjórnunar og rekstrar með það að markmiði að bæta rekstrarárangur viðskiptavina.

 

Markmið fyrirtækisins er að veita fyrirmyndarþjónustu, bæði hvað varðar gæði og hraða, og búa vel að starfsmönnum sínum sem eru vel menntaðir og starfa með leiðarljós fyrirtækisins í huga.

 

Leiðarljós DMM Lausna eru jákvæðni, heiðarleiki, samvinna og einfaldleiki.