DMM Lausnir logo

Fréttir


28. nóvember

Ný útgáfa DMM, DMM 3.3

Ný útgáfa af DMM, DMM 3.3 hefur litið dagsins ljós. Þessi ný útgáfa er í takt við stefnu fyrirtækisins sem felur í sér að keyrðu eru þemaverkefni á hverju ári sem fela í sér nýjar og uppfærðar einingar. Þemaverkefni þessa árs voru ný útgáfa vefgáttar og kortasjá, sem gerir notendum DMM mögulegt að sjá og vinna með gögn út frá kortasjá. Ný útgáfa hefur þegar verið sett upp hjá fyrsta viðskiptavini og hafa móttökurnar verið góðar. Þess má geta að vefgátt og nú kortasjá DMM hefur frá upphafi verið hönnuð með einfaldleika og hraðvirkni í huga, sem gera m.a. að verkum að vefgátt DMM hefur frá upphafi virkað ákaflega vel með öllum spjaldtölvum, en notkun kerfisins í gegnum spjaltölvur fer sívaxandi.